07.03.1927
Neðri deild: 23. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 523 í B-deild Alþingistíðinda. (942)

58. mál, bankaábyrgð fyrir Landsbanka Íslands

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Jeg gleymdi að geta þess áðan, að jeg bar báðar þessar brtt. undir formenn fjhn. beggja deilda. En því hefir ekki orðið komið við að bera þær undir nefndirnar, því að í gær var sunnudagur og því ekki fundir í nefndum. En í þessum brtt. er ekkert nýtt; það hefir alt komið fram áður á flokksfundum hjá hv. þm. Hjer liggur því aðeins fyrir að leita afbrigða til þess að þessar brtt. megi koma fram á þessum fundi, og það mun ekki vera venja að synja slíkra afbrigða.