12.03.1927
Efri deild: 26. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 630 í B-deild Alþingistíðinda. (977)

58. mál, bankaábyrgð fyrir Landsbanka Íslands

Forsrh. og fjrh. (Jón Þorláksson):

Frv. þetta er upphaflega borið fram af hv. fjhn. Nd. Háttv. þdm. eru nú kunnar orðnar ástæðurnar fyrir því, að það er fram komið, af umr. þeim, sem staðið hafa um málið í háttv. Nd. Sje jeg því ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri nú að þessu sinni, en mælist til, að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til hv. fjhn.