24.01.1928
Efri deild: 5. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2269 í B-deild Alþingistíðinda. (1214)
23. mál, friðun Þingvalla
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Frv. svipað þessu var borið hjer fram fyrir 5 árum. Það var samþ. í Ed. með mörgum breytingum, en dagaði uppi í Nd. í þinglokin. Síðan hefir málið ekki verið tekið upp í frv.formi, en ýmislegt hefir gerst, sem veldur því, að þörfin á löggjöf um þetta efni er enn brýnni en áður. Nú í vetur barst stjórninni brjef frá formanni og ritara Þingvallanefndarinnar, þar sem þess er óskað, að stjórnin beri fram frv. um friðun Þingvalla. Að vísu er í frv. gengið nokkuð lengra en nefndin óskaði eftir, því að, eins og vitanlegt er, þarf Þingvallanefndin ekki að sinna öðru en undirbúningi hátíðahaldanna 1930. En stjórninni þótti rjett, úr því að gera þurfti sjerstakar ráðstafanir vegna hátíðarinnar, að undirbúa um leið almenna verndarlöggjöf fyrir Þingvelli.
Í frv. er farið fram á, að spildan milli Hrafnagjár og Almannagjár verði friðuð framvegis og að alt svæðið að norðanverðu við Þingvallavatn verði undir sjerstöku eftirliti þingkjörinnar nefndar. Vel getur komið fyrir, að bændurnir á þessu svæði leyfi að reisa í landi sínu byggingar eða gera mannvirki, sem þættu fara illa í hjeraðinu. T. d. skal jeg geta þess, að prestinum á Þingvöllum og bóndanum á Brúsastöðum hefir dottið í hug að virkja Öxará, að vísu ekki sjálfan fossinn. En slíkt mannvirki á þessum stað mundi særa fegurðartilfinning manna. Að vísu er þetta afsakanlegt frá þeirra sjónarmiði. Þeir gera þetta ekki til að spilla völlunum, heldur til að lýsa og hita heimili sín. En jeg þarf ekki að fjölyrða um, að það yrði þeim hvumleitt, sem nokkurn smekk hafa fyrir útliti Þingvalla, ef bygðir yrðu ljótir steinsteypukassar á vestari bakka Almannagjár. Jeg ætlast til, að Þingvellir verði undir sjerstakri vernd Alþingis hjeðan í frá. Jeg geri ráð fyrir, að Alþingi verði sá húsbóndi yfir Þingvöllum, sem best fari með staðinn. Jeg býst við, að það verði svo minnugt þeirra daga, er Alþingi var haldið á Þingvöllum, að það sjái jafnan sóma sinn í því að fara trúlega með verndarvaldið yfir þessum helgistað.
Mjer dettur ekki í hug að ætla, að frv. þetta sje svo úr garði gert, að það megi ekki bæta. Það hefir þegar verið bent á ýms smáatriði, sem betur mættu fara. Legg jeg svo til, að málinu verði vísað til allshn.