04.04.1928
Neðri deild: 65. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2339 í B-deild Alþingistíðinda. (1250)
23. mál, friðun Þingvalla
Magnús Torfason:
Jeg vil geta þess um þessar brtt., sem jeg hefi nú komið fram með við 2. og 3. umr. þessa máls, að þær eru ekki að öllu leyti mín einkaeign. Þessar till. eru gerðar í samráði við gamlan og góðan Árnesing, sem ekki er þingmaður, en þó við þingið riðinn. Þegar þessar brtt. voru gerðar, þá vissi jeg ekki af því, að brtt. á þskj. 686, frá meiri hl. allshn., mundu koma Frsm. Jeg get játað það, að brtt. á þskj. 693 hefðu líklega ekki komið fram, ef jeg hefði vitað um hinar, því þær ganga mjög í sömu átt, að minsta kosti í þeim atriðum, sem verulega þýðingu hafa. Þó er brtt. á þskj. 693 víðtækari en hin, að því leyti, að í 6. lið hennar er tekið fram, að brot á reglugerðum, sem settar verða, heyri undir sektarákvæðið eins og lögin. Eins og kunnugt er, þá getur það komið að baga, þegar framfylgja skal lögunum, ef slíkt er ekki tekið Frsm. En jeg játa þó, að verði brtt. hv. allshn. samþykt, þá má við það una. Jeg mun því ekkert kapp á það leggja, hvor till. verður samþykt, mín eða nefndarinnar.