24.03.1928
Neðri deild: 56. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2362 í B-deild Alþingistíðinda. (1278)
141. mál, bankavaxtabréf
Frsm. (Hjeðinn Valdimarsson):
Nefndin hefir leitað upplýsinga hjá bankastjórn Landsbanka Íslands og fengið að vita, að eftir eru 2 miljónir, sem ekki er búið að lána út af þeim 10 miljónum króna í bankavaxtabrjefum, sem gefnar voru út 1926. En fyrir þessum 2 miljónum eru þegar komnar lántökubeiðnir, svo að segja má, að ekki sje hægt að veita frekari lán en þegar hefir verið sótt um, ef þetta frv. verður ekki samþykt. Það er því skoðun nefndarinnar, að nauðsynlegt sje að samþykkja lögin, svo að hægt sje að halda áfram að lána mönnum út á fasteignir sínar. Nefndin er ekki sammála um fasteignalán yfirleitt, og munu nefndarmenn hver gera sjerstaklega grein fyrir skoðunum sínum um þau efni síðar. Meiri hl. nefndarinnar mun flytja brtt. um lánsheimild handa stjórninni, en geymir hana og umr. um hana til 3. umr. Í frv. er engin lántökuheimild fyrir stj., en meiri hluti nefndarinnar álítur, að slík lántökuheimild eigi að vera nú eins og 1926.