29.03.1928
Efri deild: 60. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2388 í B-deild Alþingistíðinda. (1308)
141. mál, bankavaxtabréf
Jón Baldvinsson:
Það var gott, að hæstv. fjmrh. kom fram með þetta frv., því að jeg álít, að ekkert væri verra en það, að veðdeildarlánin stöðvuðust eða brjefin fjellu. Þá færi svo, að þeir, sem ráðast í að byggja yfir sig, ættu ákaflega erfitt með að bjarga sjer áfram. Jeg álít hina mestu nauðsyn að sjá fyrir þessu, og ekki síst, að fje sje fyrir hendi til að kaupa brjefin fyrir. Sje það ekki, má búast við, að þau falli niður úr öllu valdi. Jeg vænti, að hæstv. stjórn geri sitt til að sjá um, að ekki verði stöðvun á þessum lánveitingum og að afföll verði ekki mikil á brjefunum, og er það vitanlega best trygt með því, að fje sje fyrir hendi til kaupa á þeim. Um þessar lántökur get jeg sagt það, að mjer ægja þær ekki svo mjög, með því að þarna standa trygg verðmæti altaf á bak við. Og þó að mikið gangi til bygginga í kaupstöðum, fá sveitirnar líka lán, og þó að hömlur yrðu lagðar á lánveitingar úr veðdeild, eða veðdeildarlán fengjust ekki, þá mundi það engu breyta um fólksstrauminn til bæjanna, heldur aðeins verða til þess að auka dýrtíð og vandræði yfirleitt í landinu.