27.03.1928
Efri deild: 58. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í C-deild Alþingistíðinda. (1482)
68. mál, hafnargerð á Skagaströnd
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Jeg ætla aðeins að segja örfá orð um þetta mál. Jeg geri ráð fyrir, að þar sem heil þingnefnd leggur til, að því verði ekki ráðið til lykta nú, heldur óskað eftir frekari rannsókn, þá muni svo fara hjer í hv. deild. Vildi jeg aðeins gefa þá skýringu, af. því að sá ráðherra, sem á hlut að máli, er ekki staddur hjer, að jeg þykist þess fullvís, að sú stjórn, sem nú situr, eða hver önnur, sem tæki við till., mundi verða við óskum hv. sjútvn., að reyna að láta vinna að frekari rannsókn í sumar. Hvort málið yrði lagt fyrir næsta þing af stjórninni, skal jeg ekki fullyrða; en a. m. k. lofa jeg því fyrir hönd núverandi stjórnar, ef til kemur.
Þessi orð mín ber þó eigi að skilja svo, að jeg óski sjerstaklega eftir því, að frv. sje vísað frá.