28.01.1928
Neðri deild: 8. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í C-deild Alþingistíðinda. (1532)

28. mál, hveraorka

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Mjer nægir að segja aðeins fá orð um þetta frv., því að í grg. er fram tekið það, sem þarf á þessu stigi málsins. Eins og þrjú önnur stjfrv. er það borið fram í samræmi við áskorun Alþingis í fyrra. Eru vatnalögin höfð til hliðsjóðar við samninguna, og eru ákvæði þessa frv. í nánu sambandi við þau.

Jeg óska, að frv. verði vísað til 2. umr. og allshn.