26.01.1928
Efri deild: 7. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 480 í C-deild Alþingistíðinda. (1806)

46. mál, einkasala á síld

Jón Þorláksson:

Þetta frv. hefir legið fyrir þinginu áður, en verið þá felt. Og jeg sje enga ástæðu til að eyða tíma þingsins nú til þess að ræða það. Eins og þessum málum er nú komið, hefir ríkisstjórnin heimild samkv. lögum til að koma á skipulagi um síldarsöluna, og getur þá hvenær sem henni þurfa þykir tekið til sinna ráða. Jeg mun því ekki greiða þessu frv. atkv. til 2. umr.