02.03.1928
Neðri deild: 37. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 499 í C-deild Alþingistíðinda. (1840)

75. mál, verkakaupsveð

Pjetur Ottesen:

Jeg vildi aðeins benda á, að það er venja og einnig samkv. þingsköpum, að mál, sem fara milli deilda, sæti meðferð sömu nefndar beggja deilda. Nú er upplýst, að þetta mál hefir hv. sjútvn. Ed. haft til meðferðar, og leiðir þá af sjálfu sjer, að því verði nú einnig vísað til sjútvn. þessarar hv. deildar.