13.02.1928
Efri deild: 21. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 509 í C-deild Alþingistíðinda. (1850)

81. mál, atvinnurekstrarlán

Jón Baldvinsson:

Jeg vil aðeins út af orðum hv. þm. Seyðf. taka það fram, að í orðum mínum fólst alls ekki það, að jeg hyggist við mótstöðu frá Landsbankastjórninni eða bankaráðinu gegn þessu máli. Jeg spurði aðeins, hvort málið væri borið fram í samráði við stjórn Landsbankans, af því, að einn hv. flm. (JóhJóh) á sæti í bankaráðinu, og gerði því ráð fyrir því, að hann mundi vita, hvort bankaráðið væri máli þessu fylgjandi.