12.04.1928
Neðri deild: 69. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 603 í C-deild Alþingistíðinda. (1927)

111. mál, útflutningsgjald af síld o.fl.

Bernharð Stefánsson:

Jeg vil leyfa mjer að skora alvarlega á hæstv. forseta að sjá um það, að tekið verði sem allra fyrst á dagskrá frv. til laga um útflutningsgjald af síld. Mjer er kunnugt um, að þeim mönnum, er stunda þessa atvinnu, er það ákaflega bagalegt, að fá ekki að vita sem allra fyrst, hver verða úrslit þessa máls. Það grípur svo mjög inn í atvinnulíf þessara manna, að þeir eiga rjett á því, að það verði afgreitt sem fyrst.