20.01.1928
Efri deild: 2. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í B-deild Alþingistíðinda. (22)

Kosning fastanefnda

Jón Baldvinsson:

Jeg vil aðeins skjóta því til hv. þm. Snæf. (HSteins), að ef hann þykist hafa gert rjett í fyrra, á hann ekki að vera að víta það, þótt sömu stefnu sje haldið áfram. (HSteins: Jeg var alls ekki að víta þetta, heldur aðeins að beina athygli manna að því, að nú hefir verið sama aðferð upptekin sem í fyrra). Sá virtist mjer þó tónninn í ræðu háttv. þm. Snæf.