09.02.1928
Efri deild: 18. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í D-deild Alþingistíðinda. (2337)
73. mál, bréfaskifti milli stjórna Spánar og Íslands
Erlingur Friðjónsson:
Aðeins örfá orð. Mjer kemur það undarlega fyrir, að þessi till. skuli valda hita hjer í deildinni. Jeg hefi altaf litið svo á þetta mál, að það væri nauðsynlegt fyrir þjóðina að fá að vita alt sem glegst um Spánarsamningana, og á þeim grundvelli er tillagan flutt. Jeg fæ því ekki skilið þá mótstöðu, sem fram hefir komið gegn henni. Sje nú svo, að eitthvað það kunni að vera í brjefum þeim, sem á milli landanna hafa farið í þessu máli, sem háski getur stafað af, ef það kemst út meðal almennings, þá er ekki annað en fyrirbyggja háskann með því að búa svo um, að ekki komist fleira inn í þingið en það eitt, sem allir mega vita. Sje jeg svo ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um þetta á þessu stigi málsins. Hjer er aðeins um það að ræða, hvort leyfa skuli þjóðinni að fá að vita það í þessu máli, sem hún má fá að vita.