13.04.1928
Neðri deild: 70. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2804 í B-deild Alþingistíðinda. (2573)

32. mál, ungmennafræðsla í Reykjavík

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Till. á þskj. 763 er borin fram vegna þess að ætla má, að hefja verði undirbúning þessa máls þegar eftir að lögin hafa verið staðfest af konungi. Það þarf langan undirbúning, ef nokkuð verulegt á að verða úr þessari starfsemi næsta vetur.