13.02.1928
Efri deild: 21. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2930 í B-deild Alþingistíðinda. (2700)
51. mál, landhelgisgæsla
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Jeg vildi aðeins bæta við nokkrum orðum í áframhaldi af ræðu hv. frsm. Jeg geri nú ráð fyrir, að þetta frv. nái að ganga gegnum þingið, og þá kemur til framkvæmda stjórnarinnar. Jeg vil minnast á eitt atriði, þar sem jeg er ekki alveg viss um, að hv. frsm. hafi haft á rjettu að standa, það er það sem hann sagði um stærð skipsins. Þegar Óðinn var bygður, kom það í ljós, að ósamræmi var á milli ganghraða hans og stærðar. Skipið var ekki lengra en venjulegur togari, en hafði miklu meiri hraða. Það var reynt á Eyrarsundi og alt gekk vel í fyrstu. En þegar kom hingað til lands, kom í ljós, að þetta ósamræmi var hættulegt í þeim stórsjó, sem hjer er oft og tíðum, svo að lengja varð skipið um 13 fet. Það er og álit þeirra, sem vit hafa á, að „Þór“ sje of lítill til að vera á ferð í ofviðrum fyrir norður- og austurströndum landsins. Jeg segi þetta ekki í mótmælaskyni, heldur til að benda á, að ganghraðinn gerir sjerstakar kröfur til stærðar og að taka verður tillit til þess, hversu ilt er í sjó við strendur landsins. Verði þetta frv. samþ., eins og jeg vona, tel jeg víst, að stjórnin sem nú situr, og hvaða stjórn sem væri, muni fylgja því fram. Um hálf miljón kr. er nú í landhelgisjóði. Jeg geri ráð fyrir, að þegar til framkvæmda kemur, verði leitað upplýsinga hjá öllum þeim aðilum, sem þekkingu hafa í þessum efnum, og hefi jeg þegar gert ráðstafanir til þess, að skipstjórar og vjelstjórar á varðskipunum gefi skriflegt álit sitt á þessu máli. Einnig hefi jeg talað við forstjóra Eimskipafjelagsins um þetta mál, og geri jeg ráð fyrir, að vænta megi stuðnings og upplýsinga frá honum og öðrum, sem kunnugir eru í þessum efnum, svo að þetta skip megi verða sem best úr garði gert.