30.01.1928
Efri deild: 9. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2938 í B-deild Alþingistíðinda. (2716)

52. mál, löggilding verslunarstaða

Flm. (Halldór Steinsson):

Það er ekki neitt stórmál, sem hjer er um að ræða, og það hefir verið vani, að slík mál sem þetta hafa gengið umræðulaust gegnum þingið. Jeg skal þó geta þess, að jeg flyt þetta frv. samkvæmt óskum hlutaðeigandi manna vestra.

Það hefir ekki verið venja, að slíkum málum væri vísað til nefnda, en ef mönnum sýnist það rjettara, hefi jeg að sjálfsögðu ekkert á móti því.