24.02.1928
Neðri deild: 31. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2941 í B-deild Alþingistíðinda. (2729)

52. mál, löggilding verslunarstaða

Sveinn Ólafsson:

Jeg vil þakka hv. allshn. fyrir meðferð hennar á frv. þessu og skal láta þess getið, að jeg tel mig hafa náð tilgangi mínum um löggildingu verslunarstaðar á Vattarnesi, þrátt fyrir brtt. nefndarinnar. Tilgangur minn var sá, að fá löggildingu staðfesta áður en sala fer fram á húseignum þeim, sem þar eru og eiga að seljast á komanda vori. Með því er nokkur trygging fengin fyrir því, að söluverð geti orðið sæmilegt.