08.02.1928
Neðri deild: 17. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2972 í B-deild Alþingistíðinda. (2754)

36. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi

Frsm. meiri hl. (Hjeðinn Valdimarsson):

Eins og nál. ber með sjer, hefir nefndin klofnað í tvent í þessu máli. En rök fyrir skiftingu Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi hafa verið svo margrædd hjer á hv. Alþingi, að jeg þykist engu þurfa þar við að bæta, enda hafa engar nýjar ástæður komið fram. Meiri hl. allshn. hefir fallist á að mæla með frv. Þó hefir einn nefndarmaður sjerstöðu.