10.02.1928
Neðri deild: 19. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3068 í B-deild Alþingistíðinda. (2781)

36. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi

Haraldur Guðmundsson:

Jeg vil upplýsa í tilefni af ummælum hv. þm. Dal., að jeg var starfsmaður Íslandsbanka á Ísafirði um 3–4 ára skeið. En er jeg bauð mig fram við kosningarnar 1923, hafði bankinn ekki lengur þörf fyrir starfskrafta mína, að því er útibússtjórinn tjáði mjer.