13.02.1928
Neðri deild: 21. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3079 í B-deild Alþingistíðinda. (2789)

36. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi

Ólafur Thors:

Jeg vil leyfa mjer að mælast til þess við hæstv. forseta, að hann taki þetta mál út af dagskrá, vegna þess að jeg geri ráð fyrir að koma með brtt., sem enn eru ekki tilbúnar. Jeg sje ekki, að þetta ætti neitt að verða til tafar málinu, eða að fylgjendur þess þurfi þess vegna að óttast um framgang þess, þar sem svo skamt er liðið á þingtímann.