05.03.1928
Neðri deild: 39. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3182 í B-deild Alþingistíðinda. (2888)
57. mál, þingsköp Alþingis
Halldór Stefánsson:
Mjer þykir leitt, að hv. nefnd skuli ekki sjá sjer fært að mæla með þessari brtt. minni, þar sem hún þó viðurkennir að nokkru ástæður mínar. Jeg verð að segja, að mjer þykir nokkurt ósamræmi í þessu.
Þó að svo sje, að það mundi verða nokkuð misjafn málafjöldi í þessari hugsuðu nefnd og allshn. eftir skiftinguna, þá sje jeg ekki, að það sje nein sjerstök ástæða gegn till. minni. Það eru til fastanefndir, sem ekki fá fleiri en 7 mál til meðferðar að meðaltali á ári, eins og t. d. mentmn. Hún hefir ekki fengið nema sjö mál til meðferðar árlega á síðustu fjórum árum. Og þó að verkefni þessarar nefndar væri ekki eins mikið og þeirra, er mest starfa, þá ætti þó að vera nokkur ljettir fyrir allshn. að losna við þau mál, sem til hennar mundu falla. Jeg mun svo ekki gera þessa till. mína frekar að ágreiningsatriði, en læt atkv. skera úr.