06.03.1928
Neðri deild: 40. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3267 í B-deild Alþingistíðinda. (3055)

56. mál, bæjarstjórn Ísafjarðar

Magnús Jónsson:

Jeg vil aðeins leiðrjetta misskilning hjá hv. þm. Mýr. Jeg sagði ekki, að sú upphæð, sem Reykjavík greiddi Mosfellssveit, hafi verið of há, heldur lagði jeg aðaláherslu á það, hve stífnin var orðin mikil í málinu, þegar sveitirnar neituðu að semja, en upphæðina taldi jeg alveg rjetta.