16.03.1928
Neðri deild: 49. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3298 í B-deild Alþingistíðinda. (3118)
124. mál, laxveiði í Nikulásarkeri í Norðurá
Pjetur Ottesen:
Það er nú víst viðurkent af öllum nema hv. flm., að í frv. um fiskiræktarfjelög felst heimild til að gera það, sem farið er fram á að gera með þessu frv. Hv. flm. taldi óvíst, að frv. næði fram að ganga. Það hefir þó hingað til þótt spá góðu um framgang mála, er þau hafa farið mótatkvæðislaust til 2. umr. Hv. 1. þm. Skagf. hefir sýnt fram á, að sú skoðun hv. 1. þm. Árn. um að hjer þurfi að setja sjerstök lög, af því að kirkja eigi í hlut, hafa ekki við rök að styðjast. Í 8. gr. frv. um fiskiræktarfjelög segir svo:
„Kostnaði þeim, sem starfsemi fjelagsins hefir í för með sjer, skal jafna niður eftir áætluðu veiðimagni þeirra jarða, sem taka þátt í fjelagsskapnum“.
Kostnaður sá, er um er að gera í þessu máli, leiðir af klaki og friðun, og er því skýrt ákveðið um bætur í fiskiræktarfjelagafrv. Þarf því engin sjerstök lög um þetta efni. Hinsvegar er sjálfsagt, að bætur þessar haldist, þar sem um opinbera eign er að ræða, þótt prestaskifti verði, eins og sýnt hefir verið fram á í umr.