03.04.1928
Neðri deild: 64. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3734 í B-deild Alþingistíðinda. (3437)
92. mál, síldarbræðslustöðvar
Forseti (BSv):
Jeg hefi þegar lagt minn dóm á það, en ummæli þau, er hv. 2. þm. Reykv. viðhafði, voru miklu harðvítugri og óþinghæfari en hin. (SE kveður sjer hljóðs).
„Trautt mák enn fyrir annan enda sjá hvar lendir“, er hv. þingmenn gerast til þess að kveðja sjer hljóðs „til þess að bera af sjer sakir“, en nota síðan málfrelsi til þess eins að bera sakir hver á annan með óviðurkvæmilegum orðum. Þó vil jeg ekki synja hv. þm. Dal. máls, þar sem allþungar sakir hafa verið á hann bornar.