26.03.1928
Neðri deild: 57. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4456 í B-deild Alþingistíðinda. (3819)

103. mál, Landsbanki Íslands

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Jeg vildi aðeins segja það, að jeg sje ekki annað, þar sem meiri hluti þessarar háttv. deildar er hjer að vinnu og klukkan ekki nema 11 ennþá, og sjerstaklega þegar litið er til dugnaðar manna á sjónum við að halda vel út, en að hv. þm. Dal. og hv. 2. þm. G.-K. ættu að geta haldið lengur áfram.