27.03.1928
Neðri deild: 58. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4495 í B-deild Alþingistíðinda. (3841)
103. mál, Landsbanki Íslands
Halldór Stefánsson:
Menn vilja vísa þessu frv. til fjhn. En jeg verð að telja það mjög vafasamt, ef hugsað er til þess, að þetta mál komi til fullrar afgreiðslu á þessu þingi, að vísa því til nefndar, sem ekki fær starfstíma. Jeg hygg, að það sje nóg, að þau mál sofni þar, sem þegar liggja þar fyrir, þó að þessu stórmáli verði ekki bætt við.
Jeg get ekki stilt mig um að minna á það, að í gær, þegar fjhn. var neitað um starfstíma, var ekki eftir af fundartíma hennar nema ¼ stundar, þegar umræðufundur byrjaði.