12.04.1928
Neðri deild: 69. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4648 í B-deild Alþingistíðinda. (3880)

103. mál, Landsbanki Íslands

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg vil aðeins benda á, að stjórnarandstæðingar hafa í þessu máli beitt stórkostlegum málalengingum, að því er sjeð verður til þess eins að tefja það. Málið hefir nú verið rætt í 4 ár, og var full ástæða til þess við 2. og jafnvel 1. umr. þess í hv. Nd. að koma í veg fyrir óþarfar málalengingar.