09.02.1928
Efri deild: 18. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4697 í B-deild Alþingistíðinda. (3925)
72. mál, dómsmálastarf, lögreglustjórn, gjaldheimta o.fl. í Reykjavík
Flm. (Ingvar Pálmason):
Frumvarp þetta er flutt að tilhlutun hæstv. dómsmrh. og er samið af lögfræðingi að tilhlutun stjórnarinnar.
Það mun vera svo, að í þjóðlífi okkar Íslendinga kemur víða fram talsverður misvöxtur á ýmsum sviðum. Um þennan misvöxt eru skiftar skoðanir manna, og telja sumir hann miður hollan, en þó verður að álíta, að tæplega verði við honum gert. Þannig er t. d. um Reykjavík. Hún hefir vaxið örar en þjóðin hefir getað áttað sig á, og eins og jeg gat um áðan, hefir sá vöxtur verið litinn misjöfnum augum af þjóðinni. Af þessum misvexti, bæði hjer í Reykjavík og öðrum hjeruðum, sem þannig er ástatt um, er það mjög erfitt að sníða löggjöfina þannig, að hún hæfi altaf þörfum viðkomandi hjeraðs. Það er ekki langt síðan sú reynsla var fengin, er sýndi, að brýn þörf var á því að skifta bæjarfógetaembættinu í Reykjavík í tvö embætti, og gerðu menn sjer þá hinar bestu vonir um, að það fyrirkomulag mundi fullnægja um alllangt skeið. Nú er samt svo komið, að það skipulag er líka orðið of þröngt, og úr göllum þeim, sem eru á núverandi fyrirkomulagi, er frv. þessu ætlað að bæta.
Jeg sje ekki ástæðu til þess að svo komnu að fara út í einstök atriði þessa frv.; um aðalatriðið getur varla orðið mikill ágreiningur.
Jeg geri ráð fyrir því, að hæstv. dómsmrh. geri frekari grein fyrir því, hvers vegna frv. þetta er til orðið, en áður en jeg sest niður, vil jeg leyfa mjer að óska þess, að frv. fái að ganga til 2. umr. og allshn. Að vísu gæti frv. þetta átt heima í fjhn., en eftir eðli sínu virðist mjer þó, að það eigi fremur að fara til allshn.