09.02.1928
Efri deild: 18. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4700 í B-deild Alþingistíðinda. (3928)

72. mál, dómsmálastarf, lögreglustjórn, gjaldheimta o.fl. í Reykjavík

Dómsmrh. (Jónas Jónason):

Jeg vil aðeins minna hv. 3. landsk. á, að þegar hann kom á þessari gagnlegu breytingu, var jeg einn af stuðningsmönnum hans í því. En þrátt fyrir þessa viðleitni hans var annað þetta starf svo vel launað, að Reykjavíkurbær sá sjer fært að leggja 9500 kr. útsvar á þetta embætti, og var ekki kært yfir því útsvari.