12.03.1928
Efri deild: 45. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4732 í B-deild Alþingistíðinda. (3940)

72. mál, dómsmálastarf, lögreglustjórn, gjaldheimta o.fl. í Reykjavík

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Jeg vil aðeins gera þá grein fyrir brtt. minni, að fari svo, að báðar hv. deildir sjái sjer fært að fallast á það skipulag, sem frv. fer fram á, er sennilega heppilegra, að það gangi ekki, í gildi fyr en um næstkomandi áramót.