13.04.1928
Neðri deild: 70. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4788 í B-deild Alþingistíðinda. (4013)

153. mál, Seðlainndráttur Íslandsbanka

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg þóttist gera fulla grein fyrir því áðan, að ekki fylgdu þessu frv. neinar upplýsingar frá. mjer. Í þessu sambandi vil jeg taka það fram, að jeg tel alveg óþarft að vísa þessu máli til nefndar. Það, sem um er að ræða, er aðeins að framlengja það ástand, sem nú er, og þó að málið færi til nefndar, þá er svo liðið á þingtímann, að ekki gæti verið um neina athugun að ræða.