16.04.1928
Neðri deild: 73. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4811 í B-deild Alþingistíðinda. (4029)

153. mál, Seðlainndráttur Íslandsbanka

Sigurður Eggerz:

Jeg stend upp eingöngu til þess að vísa til þess, sem jeg hefi áður sagt um þetta mál. Ekkert nýtt hefir komið fram, svo að jeg get látið það nægja og sje ekki ástæðu til þess að orðlengja það meira, en vil aðeins mæla með því enn á ný, að frv. verði samþ.