11.02.1928
Neðri deild: 20. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1378 í B-deild Alþingistíðinda. (406)
6. mál, laun embættismanna
Frsm. (Hannes Jónsson):
Hv. samnefndarmenn mínir, 2. þm. G.-K. og þm. Dal., hafa báðir talið sig vera hissa yfir ræðu minni áðan. En jeg get aftur á móti sagt, að jeg sje ekkert hissa á þeim, eða rjettara sagt, að jeg er hættur að vera hissa á þeim.
Jeg býst samt við, að þeir eigi erfitt með að hrekja það, sem jeg sagði, enda er það að nokkru leyti viðurkent af hv. 2. þm. G.-K. — Hv. þm. var búinn að ganga inn á að samþykkja frv. óbreytt, þótt honum hafi síðar komið til hugar, að betra væri að láta það aðeins gilda til 1929. En jeg skal skýra till. þessara hv. þm. nánar. Hv. 2. þm. G.-K. vill breyta frv. í þá átt, að lögin gildi aðeins til 1929. Hv. þm. Dal. heldur því aftur á móti fram, að mál þetta þurfi svo mikils undirbúnings við, að setja beri nú þegar í það milliþinganefnd, með það fyrir augum, að það verði endanlega afgreitt 1930. Till. eða skoðanir þessara hv. þm. eru því illa samrýmanlegar hvor annari. Ef málið á að afgreiðast á þingi 1929, samkv. skoðun hv. 2. þm. G.-K., þá verður undirbúningstíminn síst lengri heldur en ef stjórnin athugar málið til næsta þings; þótt því þingi þætti þörf á að skipa í það milliþinganefnd vegna endanlegrar afgreiðslu 1930. Ef skoðun hv. 2. þm. G.-K. er frambærileg, þá hefir hún í raun og veru lagt að velli skoðun hv. þm. Dal. (SE: Jeg hefi ekki sagt, að málið ætti að afgreiðast á Alþingi 1929). Nei; en jeg var að bera saman fyrirvaratill. hv. samnefndarmanna minna og sýna fram á, að röksemdir þeirra gætu ekki samrýmst hvor annari. Jeg tel þó skoðun hv. 2. þm. G.K. betri. Hún yrði kostnaðarminni og væri máske framkvæmanleg, ef grundvallarskilyrðið vantaði ekki. En eins og jeg hefi áður tekið fram, þá tel jeg of snemt að ráða máli þessu til endanlegra lykta á þingi 1929, og verður jafnvel of fljótt á þinginu 1930. Verðlagið þarf að laga sig eftir genginu áður. Sem stendur er það að breytast. Síðastliðið ár var lækkun á búvísitölunni 8%, og á sjálfsagt enn eftir að lækka. En þetta er sá grundvöllur, sem á að bera uppi launalögin.