03.03.1928
Neðri deild: 38. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4868 í B-deild Alþingistíðinda. (4139)

Starfsmenn þingsins

wÁ deildafundum 3. mars skýrðu forsetar frá, að vegna óvenjulega langra þingfunda og þar af leiðandi annríkis innanþingsskrifara hefðu verið ráðnir til viðbótar tveir þingskrifarar, þeir Ragnar Jónsson og Hákon Guðmundsson, er báðir hefðu staðist þingskrifarapróf.