17.04.1928
Neðri deild: 75. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 4871 í B-deild Alþingistíðinda. (4144)

Starfslok deilda

Sveinn Ólafsson:

Mjer þykir hlýða nú, þegar háður er síðasti fundur þessarar deildar, að þakka hæstv. forseta góða fundarstjórn og samvinnu, enda þótt hann hafi stundum verið nokkuð vinnuharður við okkur og látið okkur vaka fram eftir nóttum á stundum. Jeg flyt honum þessar þakkir í nafni flokks míns og óska að mega sjá hann heilan á húfi á næsta þingi.