14.02.1928
Neðri deild: 22. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1414 í B-deild Alþingistíðinda. (448)

6. mál, laun embættismanna

ÓTh** Með svo látandi greinargerð:

Jeg vil leyfa mjer að gera grein fyrir minni afstöðu. Jeg fór fram á að málið væri rannsakað í nefnd; en þar sem það var felt og mjer eru meinaðar þær upplýsingar, sem jeg hefði fengið við frekari umræður, með því að skera niður umræður, þá sje jeg mjer ekki fært að greiða atkvæði.