23.01.1928
Efri deild: 4. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1416 í B-deild Alþingistíðinda. (458)

11. mál, fræðslumálanefndir

Halldór Steinsson:

Jeg vildi aðeins skjóta þeirri spurningu til hæstv. stj., hvort hún ætlast til, að nefnd þessi vinni kauplaust. Og ef svo er ekki, þá hvaða kaup henni er ætlað.