24.01.1928
Neðri deild: 5. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 278 í B-deild Alþingistíðinda. (54)
1. mál, fjárlög 1929
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg vil aðeins minna á, að hv. 2. þm. G.-K. (ÓTh) bar fram tillögu, sem óhjákvæmilega hefði orðið til þess að lengja þingtímann í nokkra daga, og hv. 1. þm. Reykv. byrjar á alveg óvanalegum fyrirspurnum við fyrri hluta 1. umr. fjárlagafrv. Neiti svo hver, sem vill, að Íhaldsmenn hafi gert tilraun til að lengja þingið.