09.02.1928
Efri deild: 18. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1528 í B-deild Alþingistíðinda. (584)

12. mál, betrunarhús og vinnuhæli

Frsm. meiri hl. (Ingvar Pálmason):

Meiri hl. allshn. hefir leyft sjer að koma með eina breytingu við frv., eftir bendingu hv. þm. Seyðf. (JóhJóh). Eins og sjest, þá er þetta fremur orða- en efnisbreyting, en nefndin taldi þó rjett að gera hana. Annars er þessi brtt. svo ljós, að um hana þarf ekki að fara fleiri orðum.