19.01.1928
Sameinað þing: 1. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í B-deild Alþingistíðinda. (6)
Rannsókn kjörbréfa
Frsm. 3. kjördeildar (Sveinn Ólafsson):
3. kjördeild hefir haft til rannsóknar kjörbrjef þessara þingmanna:
Ásgeirs Ásgeirssonar, þm. V.-Ísf.,
Benedikts Sveinssonar, þm. N.-Þ.,
Bjarna Ásgeirssonar, þm. Mýr.,
Bernharðs Stefánssonar, 2. þm. Eyf.,
Guðmundar Ólafssonar, þm. A.Húnv.
Halldórs Steinssonar, þm. Snæf.,
Ingólfs Bjarnarsonar, þm. S.-Þ.,
Lárusar Helgasonar, þm. V.-Sk.,
Magnúsar Torfasonar, 2. þm. Árn.,
Ólafs Thors, 2. þm. G.-K.,
Sigurðar Eggerz, þm. Dal.,
Tryggva Þórhallssonar, þm. Str.,
Þorleifs Jónssonar, þm. A.-Sk.
Deildin er sammála um, að öll þessi kjörbrjef sjeu ógölluð og kosning þessara manna vafalaus. Engar kærur fylgja nefndum kjörbrjefum. 3. kjördeild leggur því til, að brjefin verði öll samþykt og kosning fyrtaldra þingmanna tekin gild.