14.03.1928
Efri deild: 47. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1583 í B-deild Alþingistíðinda. (651)

25. mál, kynbætur nautgripa

Frsm. (Einar Árnason):

Frv. þetta er komið hingað aftur frá Nd. Hefir það ekki tekið neinum efnisbreytingum þar, og sjer landbn. því ekki ástæðu til neinna athugasemda við það, heldur leggur til, að það verði samþ. eins og það liggur fyrir.