29.02.1928
Neðri deild: 35. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1629 í B-deild Alþingistíðinda. (688)
9. mál, menntamálaráð Íslands
Frsm. (Sveinn Ólafsson):
Það er fátt um þetta frv. að segja fram yfir það, sem stendur í nál. Hefi jeg þar litlu verulegu við að bæta.
Brtt. þær, sem nefndin hefir gert á frv., lúta flestar að formi þess, aðeins að litlu leyti að efni þess og gera engar stórvægilegar breytingar á frv.
Nefndin leggur það til, að nafni þessarar nefndar verði breytt, þannig að í staðinn fyrir „mentamálanefnd“ komi: mentamálaráð. Einnig að mönnum sje fjölgað í þessu ráði úr 3 í 5. Nefndin lítur svo á, að það starf, sem þessu ráði er ætlað, sje svo yfirgripsmikið, að ekki veiti af, að 5 menn fjalli um það. Ennfremur vill nefndin, að þessir menn fái ákveðna þóknun fyrir störf sín í ráðinu, og telur rjettara, að sú þóknun verð í ákveðin þegar í stað, svo að vísu sje að ganga, enda tæpast von, að rækt verði lögð við starfið, ef ólaunað er með öllu. Það fer auðvitað eftir áliti háttv. þingdeildar, hve há sú þóknun verður ákveðin. Hjer er aðeins nefnd lítil fjárhæð, sem ætti þó að gera það að verkum, að menn bindust starfinu fastar en ella.
Þá er lítilfjörleg brtt. við d-lið 2. gr. Nefndinni þykir rjettara að láta söfnuðunum það frjálst, hvort þeir leita til þessa ráðs með útvegun á altaristöflum eða ekki, og vill hún ekki binda söfnuðunum þá skyldu á hönd, að hlíta dómi ráðsins í þeim efnum, hvernig sem verða kann.
Jeg sje ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta, þar sem hjer er aðeins um smábreytingar að ræða, sem nær eingöngu lúta að formi frv.