13.02.1928
Neðri deild: 21. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1726 í B-deild Alþingistíðinda. (773)

10. mál, sundhöll í Reykjavík

Jón Auðunn Jónsson:

Jeg hefi borið hjer fram brtt. um, að ríkið styrki byggingu sundhallarinnar að einum þriðja hluta. Ástæður fyrir þessari brtt. hefi jeg fært áður, og skal því ekki endurtaka þær. Jeg sje ekki, að ástæða sje til að kaupa menn til að styðja gott málefni með óvenjulegum styrkveitingum.