22.03.1928
Efri deild: 54. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1828 í B-deild Alþingistíðinda. (855)

26. mál, byggingar- og landnámssjóður

Frsm. (Einar Árnason):

Þetta frv. hefir tekið mjög smávægilegri breytingu í hv. Nd., aðeins orðabreytingu á einni grein. Landbn. hefir athugað þessa breytingu og leggur til, að frv. verði samþykt eins og það nú liggur fyrir.