23.03.1928
Neðri deild: 55. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1865 í B-deild Alþingistíðinda. (903)

5. mál, ýmsir tollar og gjöld með 25% gengisviðauka

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Háttv. 2. þm. G.-K. var að gera sig digran og hjelt því fram, að jeg hefði verið með lækkun á kolatollinum árið 1926. Hann hefði ekki þurft annað en líta í þingtíðindin 1926 til að spara sjer þessi ósannindi. Þar stendur í B-deild, 1478. dálki: Frv. samþ. að viðhöfðu nafnakalli og sagði nei: TrÞ.