06.03.1928
Neðri deild: 40. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1961 í B-deild Alþingistíðinda. (970)

29. mál, jarðræktarlög

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Það er aðeins örstutt aths. út af orðum hæstv. atvmrh. Landbn. bætti þessu atriði við til þess að hjálpa þeim mönnum, sem erfitt eiga með að auka ræktunina og skamt eru á veg komnir í þeim efnum, til þess að afla sjer nauðsynlegra verkfæra. Fyrir þessa sök var þessu atriði bætt inn í og á því byggist till. landbn.