06.05.1929
Neðri deild: 62. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í B-deild Alþingistíðinda. (100)

14. mál, Búnaðarbanki Íslands

Magnús Guðmundsson:

Jeg getekki sannfærst af þessum orðum hæstv. forsrh. Þetta atriði, sem hjer um ræðir, er grundvallaratriði, en ekki smáatriði, eins og hæstv. ráðh. vill vera láta. Jeg vil alls ekki láta þetta fara svo út úr þinginu, að það komi fram sem vilji Alþ., að rjett sje að lána meira út á smábýlin í nánd við kaupstaðina heldur en jafnvel bestu jarðir uppi í sveit.