02.03.1929
Neðri deild: 12. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2289 í B-deild Alþingistíðinda. (1029)

47. mál, kosningar til Alþingis

Flm. (Magnús Guðmundsson):

Þetta efni, sem hjer liggur fyrir, hefir verið svo oft áður rætt hjer á Alþingi, og þá komið fram það, sem einkum mælir með og móti, að jeg sje ekki ástæðu til að ræða það nú við 1. umr. Vil aðeins leyfa mjer að leggja til, að það, að umr. lokinni, verði látið ganga til 2. umr. og allshn.