14.05.1929
Efri deild: 68. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 2382 í B-deild Alþingistíðinda. (1101)

47. mál, kosningar til Alþingis

Jón Baldvinsson:

Jeg vona, að hæstv. forseti sýni mjer þá sömu sanngirni, sem hann hefir sýnt öðrum um önnur mál, er hjer hafa legið fyrir, og taki málið af dagskrá. Jeg hefi ekki lokið við samningu nál., en geri það svo fljótt sem jeg get. Ætti það að koma á morgun til útbýtingar. Nál. meiri hl. kom á laugardag; á sunnudag voru ýmsar annir og gærdagurinn fór allur í fjárlögin. Hefi jeg því haft lítinn tíma frá ýmsum störfum þessa daga.